Áður en þú getur skráð þig inn til að skoða þinn lista, þá þarftu að hafa búið til lista.
Vinstra meginn á aðalsíðu BloggGáttarinnar er að finna hlekkinn "Birta minn lista". Þegar smellt er á hlekkinn birtist innskráningar glugginn, þar slærðu inn það netfang sem þú skráðir þig með á BloggGáttinni. Því næst slærðu inn lykilorð og smellir á "OK".
Ef þú mannst ekki lykilorð þitt, þá getur þú smellt á "Gleymt lykilorð" sem birtist ef innskráningin mistókst.
Þegar þú skráir þig inn þá verður til vefkaka(e. Cookie) sem vistast á tölvunni þinni og geymist þar í 3 mánuði. Þetta tryggir það að þú þurfir ekki að slá inn netfang og lykilorð í hvert sinn sem þú vilt skoða þinn lista á BloggGáttinni. Líftími vefkökunnar endurnýjast svo í hvert sinn sem þú skoðar þinn lista.